9.12.2011 | 11:39
Og hérna á Íslandi þýðir þetta: Allt í himnasælu með evruna.
Samfylkingin hefur sett upp Þýðingarmiðstöð í Utanríkisráðuneytinu.
Fyrir smápeninganna sem Össur gleymdi að gefa í þjórfé.
Þegar svona vitleysa veltur upp úr ráðamönnum í Evrópu.
Að tilraun út af Evrunni hafi farið út um þúfur eða að allt hafi brunnið við í ofninum hjá Merkel.
Þá koma þau Jóhanna og Össur alltaf með útgáfuna úr Þýðingarmiðstöðinni fyrir okkur Íslendinga.
Að allt sé í fullkomnu lagi með evruna eftir smávægilega byrjunarerfiðleika í seðlaprentsmiðjunni.
Eða að evran sé á fljúgandi siglingu og hafi bjargað Grikklandi frá hungursneið.
Og næst að örlitlir tæknigallar séu í skráningu evrunar í kauphöll út af biluðu tölvuforriti.
Og við Íslendingar höfum varla við að trúa og trúa.
En alltaf sama lýgin í þessum útlendingum og gott að hafa Þýðingarmiðstöð til að sjá við því.
Tilraun til samkomulags 27 ríkja fjarar út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:41 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.