Leiga er einnig óheimil til lengri tíma en 3 ára.

Skúli Helgason alþingismaður var rétt í þessu að spyrja innanríkisráðherra, Ögmund Jónasson, á Alþingi.

Hvort kínverskt hlutafélag gæti fengið að leigja Grímsstaði á fjöllum.

Sorglegt er að sjá að hinn ágæti stjórnarþingmaður Skúli Helgason, hefur ekki einu sinni lesið lögin um málið.

Þau heita lög um eignarrétt og afnotarétt fasteigna.

Leiga er einmitt algengasta formið á afnotarétti.

Og í fyrstu grein laganna kemur nákvæmlega fram að leiga er heimil til skemmri tíma en þriggja ára.

En nákvæmlega sömu lagarök gilda um leigu til lengri tíma og um sölu.

Slíkan leigusamning er ráðherra því algerlega óheimilt að samþykkja.

Hins vegar vaknar spurning hvort fleiri alþingismenn en einn, heiti Skúli Helgason.

Í morgunútvarpi Rásar 2 var, í morgun, alþingismaður, Skúli Helgason, er vildi vernda landið fyrir ásælni og yfirgangi.

Og tryggja að auðlindir þess væru þjóðareign.

Og tók vel og vandlega undir sjónarmið og málflutning Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur.

Þegar hún rökstuddi þingsályktunartillögu sína um að Alþingi endurskoði þessi lög til að tryggja yfirráð þjóðarinnar yfir landinu.   


mbl.is Vill ekki tjá sig um leigu á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband