2.11.2011 | 13:55
Íslenskur þjóðarauður til Austur Evrópu...Við verðum betlarar...
Flestir muna eftir því þegar Vestur Þjóðverjar sem voru eitt öflugasta hagkerfi heims, tóku Austur Þýskaland yfir.
Þetta reyndist svo skelfilega dýrt að Þjóðverjar eru ekki enn búnir að bíta úr nálinni með þann kostnað.
Fyrrum kommúnismalönd hafa undanfarin ár hamast við að komast inn í ESB.
Þær þjóðir vonast auðvitað til að verða keyptar hratt inn í nútímann eins og gert var við Austur Þjóðverja.
Og hverjir eiga að borga herkostnaðinn? Jú einmitt ríku þjóðirnar í Vestur Evrópu.
Gangi Íslendingar í ESB, koma hingað togarar frá Spáni og fleiri löndum.
Og ryksuga upp íslensk fiskimið enda eru þeir "búnir" með fiskimiðinn í kringum Bretlandseyjar.
Afgangur af þjóðarauði Íslendinga, svo sem virkjanir, verður svo tekinn upp í skuldir og alls konar gjöld og skatta til ESB.
Eða hvað?
Er ekki komið nóg af tilraunastarfssemi með íslenskan þjóðarhag?
(Áður birt 5. janúar 2009. Því miður að rætast. )
Beint framlag til ESB 13-15 milljarðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.