5.10.2011 | 02:05
Nei getur það verið?
Við eigum bæði klárustu fjármálamennina og vitrustu stjórnmálamennina.
Þannig eru Jóhanna og Össur einu stjórnmálamennirnir í Evrópu og heiminum.
Sem hafa vit á efnahagsmálum og segja allt í lagi með evruna.
Sem meira að segja þeir í Brussel halda í lífshættu.
Sjálfur Árni Páll hefur staðfest það. Og sá maður er nú ekki vanur að fara með annað en fleipur.
Við spyrjum sko að endalokum.
Því skulu menn sko kynnast þegar Össur minn leggur Brussel að velli. Og í rústir.Steingrímur verður framkvæmdastjóri NATÓ og lætur sprengja AGS í Washington.
Þessa sem eru búnir að sparka í rassg**tið á honum í tvö ár.
Þannig að vont er að sitja lengi, í ráðherrastólnum, í einu.
Hún Jóhanna endar sem forstjóri Sameinuðu þjóðanna og Ólína sáttasemjari.
Þá skuluð þið Kana fíflin fá að kynnast því.
Við getum líka sent þær strax ef þið þorið.
Hlegið að Íslendingum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:54 | Facebook
Athugasemdir
Eftir stendur flokksræðið og einkavinavæðinginn ofar lýðræðinu!
Sigurður Haraldsson, 5.10.2011 kl. 20:51
Og hefur versnað töluvert Siggi.
Viggó Jörgensson, 5.10.2011 kl. 22:39
Já það er að ganga að okkur dauðum sem eftir eru í landinu.
Sigurður Haraldsson, 6.10.2011 kl. 00:18
Gæti gert það ef fólk fer ekki að taka við sér.
Viggó Jörgensson, 7.10.2011 kl. 01:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.