15.9.2011 | 16:58
Sú ætti nú að þekkja það.
Skæruhernaður í stjórnmálum hefur ætíð verið sérgrein frú Jóhönnu Sigurðardóttur.
Vera bara nógu mikil pest.
Þannig hefur frúin losnað við keppinauta úr eigin röðum.
Þannig hefur frúin haft sín mál í gegn.
Sama hvort það er í ríkisstjórn, flokknum eða á Alþingi.
Bara tekið, eða hótað að taka, frekjukast.
Og nú reynir stjórnarandstaðan að herma þetta eftir.
Von að frúnni ofbjóði.
Óbilgirni og ofbeldi á þingi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:59 | Facebook
Athugasemdir
Guð minn almáttugur hvað fólk getur haft litla meðvitund, svo ekki sé minnst á minni. Það sannast hér vel á þér Viggó minn.
hilmar jónsson, 15.9.2011 kl. 18:04
Satt segirðu minn ljúfi.
Aldurinn færist yfir okkur Hilmar.
Viggó Jörgensson, 15.9.2011 kl. 18:33
Ofbeldið hefur verið frá núverandi stjórnarliðum. Og það ÍTREKAÐ.
Elle_, 15.9.2011 kl. 19:26
Já ElleEricson og þau sjá það ekki sjálf...
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 15.9.2011 kl. 20:25
Nei, þau sjá það nefnilega alls ekki, Ingibjörg. Og halda sig vera góða stjórnendur og stæra sig meðal annars af að batnandi efnahag. Sem er ótrúlegt miðað við kúgunina ICESAVE sem þau ætluðu að pína yfir okkur. Maður er skelfingu lostinn hvað Jóhanna og co. og Steingrímur og varðmenn hans (Árni Þór, Björn Valur) vaða í mikilli villu og minnir á helsjúka valdníðslustjórnarflokka og stjórnir sem bara ruddu stjórnarandstæðingum og eigin þjóðum úr vegi.
Elle_, 15.9.2011 kl. 21:05
Og Elle og Jóhanna.
Það eru einmitt kaldastríðsstjórnmálamennirnir
og þeir sem hafa ofsatrú á einhverri allsherjarlausn
sem þarf að losna við úr stjórnmálunum.
Viggó Jörgensson, 15.9.2011 kl. 21:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.