3.9.2011 | 20:01
Eru það einhverjar fréttir?
Ólafur Ragnar Grímsson er einhver mesti loddari þjóðarinnar á seinni tímum.
Ungur var hann í Framsóknarflokknum.
Svo klauf hann sig þar út og stofnaði svokallaða Möðruvallarhreyfingu.
Þá fór hann í Samtök frjálslyndra og vinstri manna.
Þaðan fór hann í Alþýðubandalagið.
Hann hafur aldrei haft neina heilsteypta sannfæringu fyrir einu eða neinu nema að vera persónulega í sviðsljósinu.
Hann missti sig rækilega í útrásinni.
Tókst svo að laga orðspor sitt með því að hafna lögunum um icesave.
Það gerði hann ekki fyrir íslensku þjóðina heldur til að bjarga sjálfum sér í Íslandssögunni.
En er nú aftur flatur í forinni er hann vill styðja Kínverska kommúnista til að kaupa framtíð Íslensku þjóðarinnar.
Ólafur hefur BA próf í hagfræði. Sat á fremsta bekk í útrásinni en sá ekki í gegnum þá blekkingu.
Ólafur er einnig með bæði BA próf og doktorspróf í stjórnmálafræði.
Og er mestur kunningi Kínverja á vesturlöndum.
En Ólafur sér heldur ekki í gegnum áform Kínverja.
Þvílíkur auðnuleysingi sem fyrr.
Ólafur Ragnar skipti um skoðun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.9.2011 kl. 05:00 | Facebook
Athugasemdir
Sæll ég er samála hverju einasta staf sem þú skrifar!
Sigurður Haraldsson, 3.9.2011 kl. 20:43
Þakka þér Siggi.
Og við sem héldum að landið og þjóðin gæti kannski einhvern tímann farið að ná sér.
Viggó Jörgensson, 3.9.2011 kl. 21:50
Sammála Sigurði.
Mjög góð grein.
Ég vissi ekki með þetta BA próf í hagfræði. Tók hann það í HÍ?
Sleggjan og Hvellurinn, 4.9.2011 kl. 13:11
Ólafur lauk stúdentsprófi frá MR árið 1962 og varð 19 ára þá um vorið.
Hann lauk BA prófunum í stjórnmálafræði og hagfræði árið 1965
og doktorsprófinu í stjórnmálafræði árið 1970
öllum frá háskólanum í Manchester í Englandi.
Kom svo heim og gerði allt vitlaust bæði í stjórnmálunum og sjónvarpinu.
Og er enn að.
Viggó Jörgensson, 4.9.2011 kl. 22:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.