23.7.2011 | 02:07
Minnst 80 látnir af Utøya en 560 ungmenni voru stödd þar.
Þetta verður alltaf hrikalegra.
Samkvæmt nýjustu fréttum frá tv 2 eru 80 látnir af þeim sem voru á eyjunni.
http://www.tv2.no/nyheter/innenriks/politiet-minst-80-drept-paa-utoeya-3544636.html
Hann skaut og skaut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:55 | Facebook
Athugasemdir
Sorglegt,
Það er orðið nokkuð augljóst að boð og bönn duga skammt á okkar tímum, fólk virðist gera það sem að því dettur í huga að gera án þess að huga að afleiðingum gjörða sinna. Það sorglega er að það er eitthvað í okkar samfélagi sem fær einstaklinga til að falla í viðjur erfðasyndanna sjö sem eru hröki, öfund, reiði, þunglyndi (leti), ágirnd, ofát og munúðlífi. Erfðasyndirnar hafa ekkert með trúabrögða að gera, þær koma úr heimspeki og tengjast þær umfjöllun um dyggðir einstaklinga og samfélagsins er við hyggjumst byggja.
Spurningin sem okkar alheimsvædda neyslusamfélag verður að fara að fá svar við er hvað er það sem veldur öllu þessu ofbeldi hjá okkur og hvað er það sem fær manneskju til að fremja slík ódæði? Það er nokkuð augljóst að það er ekki alveg allt með felldu í okkar vestrænu velferðarsamfélögum þar sem ójöfnuðurinn er alltaf að verða meiri og meiri.
Atlinnatlinn (IP-tala skráð) 23.7.2011 kl. 11:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.