23.7.2011 | 01:22
Vitum ekki einu sinni hverjir eru á landinu - þökk sé Schengen.
Við Íslendingar erum þeir fáráðlingar að vera í þessu Schengen samstarfi með Evrópulöndum.
Þannig höfum við greitt götu glæpamanna frá Austur Evrópu.
Svo að þeir geti komið sér vel fyrir á Íslandi til að selja hér dóp og konur.
Bretar eru ekki í Schengen og segir það sína sögu.
Þeir nýta sér að land þeirra er eyja og þá kosti til að fylgjast með umferð til og frá landinu.
Vilji einhverjir glæpamenn af Schengen svæðinu gera hér hryðjuverkaárás eða stunda hvers kyns glæpi.
Þá er svar íslenskra stjórnvalda:
Hvers konar athafnamenn frá EES eða ESB löndum eru innilega velkomnir
bara ef þeir eiga ekki mótorhjól.
Spyr hvernig staðan sé á Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:07 | Facebook
Athugasemdir
"Bretar eru ekki í Schengen og segir það sína sögu."
Þetta er akkúrat öfugt við það sem Bretar virðast vera að segja á netinu, þeir eru einmitt mjög óánægðir með það hversu margir útlendingar fái að búa í landinu.
Arnar (IP-tala skráð) 23.7.2011 kl. 14:57
Ég held að úrsögn í Schengen komi ekki í veg fyrir að geðbilaðir menn fremji voðaverk hér á landi. En ég er samt sammála að það mætti hafa meira eftirlit með því hverjum er hleypt inn.
Viðar F. (IP-tala skráð) 23.7.2011 kl. 19:27
Arnar
Ef þú ert að tala um innfædda hvíta Breta.
Þá verður þú að athuga að fólk frá fyrrverandi nýlendum og samveldislöndum
gat komið til Bretlands.
Sama sérðu í Frakklandi og víðar.
Svo er spurningin hvernær þetta fólk hættir að vera útlendingar.
Gamlir hvítir þjóðernissinnar hætta aldrei að líta á þessa innflytjendur og afkomendur þeirra
sem útlendinga. Sama þótt þeir séu fæddir í landinu.
Viggó Jörgensson, 23.7.2011 kl. 22:34
Við erum sammála um þetta Viðar.
Hins vegar stuðlar frítt flæði af útlendingum
að því að einhver þjóðernissinninn gangi einn daginn af göflunum.
Sjáðu t. d. Össur og félaga í Samfylkingunni.
Með um 30% fylgi ætla þau að nauðga íslensku þjóðinni í ESB.
Gæti ekki einhver tjúllast út af því?
Ég á von á því frekar en ekki.
Viggó Jörgensson, 23.7.2011 kl. 22:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.