15.6.2011 | 23:34
Hlýtur að spilla rannsóknum að upplýsa þetta.
Hvað kemur okkur þetta við á þessu stigi?
Er þetta ekki eitthvað sem mátti bíða þar til embætti sérstaks saksóknara verður lagt niður?
Hlerað á annað hundrað símtæki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Kannski vissir stjórnmálamenn telji sig vera grunaða um græsku?
Spillingin teygði sig inn í starf stjórnmálaflokka. Voru ekki sumir stjórnmálamenn falir fyrir peninga, jafnvel heilu flokkarnir?
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 16.6.2011 kl. 00:08
Og þú varst knúinn til þess að blogga um þessa frétt? Í 23 orðum bætir þú ekki neinu við fréttina nema fávisku þinni.
Bara fyrsta setningin: Hvað kemur okkur þetta við á þessu stigi?
Jú við viljum gjarnan vita hverja lögreglan er að hlera! Er það ekki?
Og hin setningin sem þú ritar af andgift: Er þetta ekki eitthvað sem mátti bíða þar til embætti sérstaks saksóknara verður lagt niður?
Verður það embætti lagt niður? Og af hverju bíða þanngað til þá? Eigum við ekki rétt á því að vita hvað er að gerast í þessu þjóðfélagi? Viltu þöggun?
Þú ert svona heimskur miðaldras karl sem ég eyði núna of miklum orðum í.
hara (IP-tala skráð) 16.6.2011 kl. 00:13
Og heldur þú Mosi að framsóknarmenn hafi ekki getað haldið í sér lengur?
Viggó Jörgensson, 16.6.2011 kl. 00:36
Kannski var það einmitt tilgangur fyrirspyrjanda að spilla rannsókninni.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 16.6.2011 kl. 00:59
hara
Þú hefur ekki tekið eftir að ég setti spurningarmerki á eftir tveimur setningum.
Til að fá óheimskt fólk eins og þig til að koma með athugasemdir.
Það gleður mig að þú skulir hafa talið upp á tuttugu og þrjá.
Og viljir þú halda áfram námi þá eru þetta þrjátíu orð með fyrirsögninni.
Nei ég vil ekki að lögreglurannsókn á sakamálum sé í beinni útsendingu.
Ég vil þöggun á meðan rannsókn stendur yfir.
Þið sem eruð meðal hinna grunuðu viljið eðlilega vita hvað löggan er að gera.
En þakka þér að ætla ekki að eyða orðum á mig framvegis.
Þín vegna fæ ég þá að hafa mína heimsku í friði.
Guði sé lof.
Viggó Jörgensson, 16.6.2011 kl. 01:01
Já Axel.
Hvað eigum við Mosi að halda?
Viggó Jörgensson, 16.6.2011 kl. 01:18
Það kemur ekki á óvart hjá þessari ríkisstjórn að símhleranir hafi aukist þetta mikið. Það er á öllum sviðum verið að innleiða þá stjórnarhætti sem tíðkuðust í Austur-Þýskalandi.
Jón Óskarsson, 16.6.2011 kl. 07:18
Ég held Jón að við fáum skýrslurnar frá Stazi og prjónum svo við þær áfram.
Viggó Jörgensson, 17.6.2011 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.