29.5.2011 | 20:42
Jóhanna og Össur hypji sig.
Það eina sem getur bjargað Samfylkingunni er að núverandi forysta og mest af þingliðinu hypji sig.
Þarna eru á ferð fordjarfir tækifærissinnar, dómgreindarlausir sjálfsdýrkendur, amlóðar og vanmetafé er ekkert fékk í vöggugjöf nema helst frekju og það allan skammtinn.
Sumt af þessu fólki er það illa komið, að það trúir því sjálft að það sé fært um að sitja á Alþingi.
Algerlega tekur þó út yfir allt, þegar sömu sauðir treysta sér til að sitja í ríkisstjórn.
Væri varla hægt að handvelja það betur.
Samfylkingin ræðir umbætur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:50 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.