Þetta var þá samsæri þrátt fyrir allt?

Gísli Svanur Þorkelsson sagði okkur þetta á bloggsíðu sinni í fyrradag:  

"...Samsæriskenningin sem virðist hafa mest kjöt á beinunum kom fram á vefsíðu LePost. Þar segir að sá sem fyrstur varð til að tweeta um handtökuna hafi verið Jonathan Pinet, franskur andófsmaður sem starfar fyrir franska hægriflokkinn UMP. Hann tweetaði um handtökuna nokkru áður en hún átti sér stað. Sá sem var fyrstur til að endur-tweeta um málið var Arnaud Dassier, franskur spunameistari sem áður hefur reynt að breiða út óhróður um DSK og lúxus-einkalíf hans. Fyrsta vefsíðan sem skýrði frá handtökunni var franska hægri sinnaða bloggsíðan 24heuresactu. Grein birtist þar um handtökuna löngu áður en t.d. The New York Post birti fréttina fyrstur bandarískra fjölmiðla. Pinet sagðist hafa fengið fréttirnar frá kunningja sínum sem vinnur á hótelinu..."

Það eina sem getur skýrt þessa árás DSK er að þessir vinir pólitískra andstæðinga hafi vitað að karlinn væri að bíða eftir vændiskonu upp á svítu sína.

Þeir hafa einnig vitað karlinn myndi stökkva á hana eins og simpansi um fengitíma eins og venjulega á þær stúlkur. 

Og þá senda þeir viljandi hina siðprúðu múslimsku stúlku inn til DSK í von um þennan misskilning og að allt yrði vitlaust.  

Fyrrverandi saksóknari í kynferðisbrotamálum í New York sagði einu staðarblaðanna þar.

Að hún hefði aldrei í þau 25 ár sem hún var saksóknari, né síðan, vitað til þess að New York lögreglan hefði unnið svona hratt eins og hún gerði í þessu máli. 

Vinirnir á hótelinu hafa komið því rækilega á framfæri við lögguna að DSK væri farinn á flugvöllinn. Kannski minnst á Roman Polanski málið í leiðinni.

Strax á mánudeginum vísaði saksóknari í annað mál DSK frá Mexicó í fyrra.  

Frönsku vinirnir hafa upplýst New York lögguna vel og rækilega um feril DSK. 

En það verður ekki sagt annað en að DSK hafi hjálpað andstæðingum sínum sjálfur.

 


mbl.is Strauss-Kahn sleppt í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Varstu ekki búinn að frétta þessa samsæriskenningu? Ég er búinn að frétta nokkrar ennþá svæsnari. Eins og þú bentir á var "fjölmiðlaaftakan" snögg og ákveðin.

En vissirðu að sólarhring áður en hann var handtekinn var diplómatísk friðhelgi afturkölluð?  Ætli einhver hafi verið búinn að ákveða handtökuna fyrirfram?

Veistu hver stjórnar núna IMF? Það er Bandaríkjamaðurinn John Lipsky, næstráðandi hjá sjóðnum og fyrrum aðalhagfræðingur JPMorgan risabankans.

Vissirðu að Bandaríkin urðu gjaldþrota á mánudaginn? Nei líklega hvarf það í fjölmiðlasirkus sem hófst tímanlega einum og hálfum sólarhring fyrr.

Wall Street hefur skyndilega tögl og hagldir yfir efnahagslífi heimsins. Í þetta sinn er það ekki aðeins bankarán, heldur beinlínis valdarán.

Eins og ég sagði er þetta samsæri, en það eina sem er "kenning" er samtenging þessara einkennilegu atburða í einhverskonar frásögn.

P.S. Hringið í Steingrím og Árna Pál og segið þeim að sjálft heimsveldið USA hafi ekki lengur "aðgang að alþjóðlegum fjármálamörkuðum", og himnarnir hafi ekki hrunið.

Guðmundur Ásgeirsson, 21.5.2011 kl. 02:01

2 Smámynd: Viggó Jörgensson

Þú segir aldeilis fréttir Guðmundur.

Hvar get ég lesið um að diplómatísk friðhelgi hafi verið afturkölluð?

Viggó Jörgensson, 21.5.2011 kl. 23:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband