3.5.2011 | 13:13
Hann Össur fer í málið.
Þjóðin þarf nauðsynlega að fá botn í þetta leynivasamál.
Þegar mest liggur við fer heillastjarna okkar Össur Skarphéðinsson með himinskautum.
Hann er einmitt að koma úr bráðnauðsynlegri ferð til Indlands.
Þar var hann svangur og þyrstur, í helvítishita, að kynna sér hnattræna hlýnun á eigin kroppi.
Allt leggur blessaður engillinn á sig fyrir okkur eins og frelsarinn forðum.
Össur hitti sjálfan húsvörðinn í indverska stjórnarráðinu sem sýndi Össuri allan kjallarann og kyndiklefann í húsinu.
Eins og sagði í tilkynningu Utanríkisráðuneytisins um málið:
"...Össur ræddi orkumál við indverska ráðamenn..." "...Voru viðræðurnar vel heppnaðar..."
"...Hva...ég spyr ekki að honum Össuri..." sagði gömul frænka mín af Mýrunum þar sem Össur var fjóspúki í sveit.
Var Harrý prins með leynivasa? | |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:56 | Facebook
Athugasemdir
Hvað í fjandanum hefur þetta með Konungsbrúðkaup í Bretlandi með að gera. Harrí lætur sauma leynivasa í jakkann sinn og þá er það góð ástæða til að skjóta á Össur fyrir að heimsækja Indland?
Ekki það að ég hagi áhuga á að verja Össur eitthvað en í alvöru talað maður, þetta er eins og ég fari að gagnrýna ríkisstjórnina útaf því að veðrið var vont. Vertu ekki með svona algjörlega óþarfar tengingar.
Einar Örn Gissurarson, 4.5.2011 kl. 00:42
Ég vona að þér líði betur Einar minn
að hafa komið þessu frá þér.
Viggó Jörgensson, 4.5.2011 kl. 23:15
Ef þetta dugar ekki
þá bendi ég þér á Microlax
sem fæst án lyfseðils í lyfjabúð.
Viggó Jörgensson, 4.5.2011 kl. 23:17
Bið svo að heilsa Hirti og Sólu
já og Elísabet Björk.
Viggó Jörgensson, 5.5.2011 kl. 00:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.