2.2.2011 | 16:24
En við höldum vonandi Óla og Dóru?
Ég ætla rétt að vona að þessi læti þarna í kringum Miðjarðarhafið verði ekki til þess að einhverjum detti í hug að hann Óli okkar eigi að hætta að vera forseti.
Það er ekki á atvinnuleysið bætandi þó að Óli og Dóra færu ekki á vergang ofan í kaupið.
Þannig var Konrad Adenauer kanslari Þýskalands þar til hann var hálfníræður.
Hann byggði upp Þýskaland, eftir stríðið, úr rústum.
Sem leiðir auðvitað hugann að því að frú Jóhanna situr kannski í tuttugu og fimm ár í viðbót.
Án stríðs, og mun fyrr, mun þá Ísland verða í rústum.
Segir nei við ævilangri forsetatíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:35 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.