30.10.2010 | 03:09
Af hverju hringir þú ekki á lögregluna Guðmundur?
Í niðursveiflunni eftir 1990 fór félag málarameistara um bæinn og athugaði hverjir voru að mála fyrir fólk.
Ef ekki var um eigandann sjálfan eða réttindamenn að ræða, hringdu þeir umsvifalaust á lögreglu.
Og full ástæða til þar sem um fjölda lögbrota er að ræða sem nauðsynlegt er að fá lögregluskýrslu um.
Ef þið hjá Rafiðnaðarsambandinu hringið aldrei á lögregluna,
þá trúi ég ekki orði af þessu Guðmundur.
Svo hljótið þið að hafa efni á meiðyrðamálum, varla er æra þessara manna hátt metin, ef þeir eru þá til.
Ef svo mikið sem eitt svona mál hefur rekið á ykkar fjörur eruð þið bara réttir og sléttir aumingjar að hafa ekki bæði hringt í lögreglu, blöðin, tollinn, skattinn, útlendingaeftirlitið vinnumálastofnun o. s. frv.
Þar að auki að hylma yfir lögbrot.
Mr. X kaupir raðhúsalengju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.