13.10.2010 | 15:54
Enginn áhugi hjá ríkisstjórninni.
Ríkisstjórnin er að reyna að uppfylla kröfur ESB.
Um að halli á fjárlögum sé ekki meiri en 3% af vergri landsframleiðslu og að skuldir ríkisins séu ekki hærri en 60% af vergri landsframleiðslu.
Að ríkisstjórnin ætli að skuldsetja ríkið meira til að hjálpa einhverjum heimilum er bara ímyndun.
Að ríkisstjórnin vilji tímabundinn halla á fjárlögum til að halda hér velferðarríkinu er bara ímyndun.
Áfram hangir ríkisstjórnin aftan í AGS og ESB þannig að ekki þarf frekari vitnana við.
Þetta hefur dr. Lilja Mósesdóttir þjóðhagfræðingur og stjórnarþingmaður sagt okkur sjálf og útskýrt þannig að hver maður skilur.
Við þurfum því ekki annað en fylgjast með því hvort ríkisstjórnin segir upp samningnum við AGS eða ekki
til að sjá hvort hún heldur með Bretum, Hollendingum, AGS og ESB
eða okkur fólkinu í landinu.
Engin verkáætlun kynnt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:36 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.