10.10.2010 | 19:56
Nei getur það verið?
Ekki hefur hann Össur okkar minnst á neitt bull í Brussel.
Þeir hafa þá notað tækifærið bölvaðir þegar Össuri blessuðum hefur runnið í brjóst.
Hann Össur okkar hvílist best á ferðalögum og aldrei betur en á fundum.
Þá sjaldan hann litur við hér heima verður hann strax örmagna af því að hlusta á bölmóðinn í Steingrími og Jóhönnu.
Þá er nú betra að vera í Brussel þar sem menn fullvissa Össur um þeir sofi varla út af áhyggjum af Íslendingum,
og bíði með öndina í hálsinum eftir að fá að koma hér öllu í lag.
Nýlenduherrunum í löndum ESB er skítsama um almenning í eigin löndum en vilja sem sagt allt fyrir okkur gera sauðsvartan almúgann á Íslandi.
Nærri má nú geta.
Segir embættismann ESB bulla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:00 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.