7.6.2010 | 13:09
Sannleikssniðganga - minnir á mafíuna.
Jóhanna segir að bankaráðsmenn hennar og embættismenn hafi mögulega brotið lög.
Hún hendir smjörklípum í allar áttir jafnt á samstarfsfólk, undirmenn og andstæðinga.
Hún er að stappa mannorð þeirra Láru V. Júlíusdóttur og Ragnhildar Arnljótsdóttur ofan í skítinn og segir þær mögulega hafa brotið sjálfa stjórnarskrána með því að taka sér fjárveitingavald til að hækka laun Más.
Jóhanna hafði á heilanum að losna við Davíð Oddsson og fá Má Guðmundsson í Seðlabankann.
Nú þykist hún ekkert hafa fylgst með því hvort Már vildi að taka við starfinu vegna lélegra launa.
Þær Lára V. Júlíusdóttir og Ragnhildur Arnljótsdóttir eru þekktar fyrir annað en að brjóta lög landsins.
Nú hentar það Jóhönnu að segja alveg hiklaust að hafi lög verið brotin eða einhver ráðagerð verið um slíkt þá séu hinir seku einmitt þær Ragnhildur og Lára.
Já og auðvitað Már að taka við ólöglegum launum, hafi það verið.
Láti Jóhanna engan taka pokann sinn er hún að staðfesta að hún vissi allt um málið og samþykkti það með aðgerðaleysi og látbragðsleik.
Hafi þetta mál engar afleiðingar er það farið að minna óþægilega á lýsingar í bókinni Guðfaðirinn.
Svo að Guðfaðirinn gæti alltaf neitað öllu, talaði hann aðeins við sérstakan trúnaðarlögmann. Trúnaðarlögmaðurinn kom svo skipunum, sem ekki þoldu dagsljósið, áfram til undirmanna.
Lögmenn Guðföðursins voru hins vegar ekki að senda hverjir öðrum tölvupóst um erindisreksturinn, né voru lægra settir að senda póst á hann sjálfan.
Þetta þarf Guðmóðir þjóðarinnar að lagfæra svo við megum trúa að hún hafi aldrei heyrt neitt eða séð.
Því að hún viti vart sitt rjúkandi ráð þarna í ráðuneytinu - getum við hins vegar strax trúað.
Vænd um spillingu og lygar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:29 | Facebook
Athugasemdir
Sigurður Kári er alltaf fenginn í skítverkin hjá Sjálfstæðisflokknum. Hann hefur ekkert fram að færa og er ekki nothæfur í annað. Hann var fenginn til þess að verja skipun sonar Davíðs í dómaraembætti. Það var lögbrot en Sigurður Kári varði þá skipun með kjafti og klóm í fjölmiðlum vitandi að þarna var um að ræða spillingu á hæsta stigi auk þess að vera lögbrot.
Það þarf að skoða allt sem Sigurður Kári segir í því ljósi. Hann ber ekki mikla virðingu fyrir sannleikandum.
Guðmundur Pétursson, 7.6.2010 kl. 13:51
Ég trúi engu sem neinn segir þarna niður í Alþingi. Ekki að fyrra bragði.
En ég gat stautað mig fram úr þessum tölvupóstum og það er mér nægilegt til að sjá hverjir er flekaðir í málinu.
Viggó Jörgensson, 7.6.2010 kl. 14:26
Vor Guðlegi leiðtogi hefur aldrei brotið neitt af sér.....
Óskar Guðmundsson, 7.6.2010 kl. 19:25
Jesús góður.
Ekki lagaðist málið í Kastljósinu áðan.
Frú Jóhanna upplýsti að launatillögupóstur Láru til Ragnhildar
H E F Ð I R A G N H I L D U R S E N T Á F R A M T I L M Á S ! ! !
Sem sagt að launatillaga sem formaður bankaráðsins gerði til forsætisráðuneytisins,
hefði ráðuneytisstjórinn sent til umsækjandans
??? til ákvörðunar ???
Og þetta segir okkur forsætisráðherra hins óspillta Íslands án þess að gera sér nokkra grein fyrir hvað hún er að segja.
Æðsta stjórnvald landsins var framselt til umsækjandans Más Guðmundssonar ?!?!
Viggó Jörgensson, 7.6.2010 kl. 20:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.