8.3.2010 | 15:00
Sjá fyrst spilin á borðinu. Hvað kemur út úr eignunum í Bretlandi. Semja eftir nokkur ár.
Alveg er Steingrímur frá Gunnarsstöðum ótrúlegur stagkálfur.
Enn heldur hann að íslenska þjóðin vilji að hann sé að grauta í icesave pottinum.
Bretar geta sjálfum sér um kennt að hafa skellt á okkur hryðjuverkalögum.
Fyrst á íslenska ríkið, og okkur öll, og seinna á Landsbankann eingöngu.
Af þessu brjálæði Breta varð stórkostlegt tjón, og rýrnun, á eignum íslensku bankanna í Bretlandi og víðar.
Af þeim kaleik verða Bretar sjálfir að súpa.
Fyrst viljum við sjá heildarmyndina á borðinu. Enga óútfyllta víxla á börnin okkar.
Hvað næst upp í icesave skuldina með eignunum í Bretlandi og hvað stendur þá eftir.
Hvert var tjónið af völdum Breta og þá er hægt að byrja á samningum. Þetta verður eftir nokkur ár.
Þá verða pólitískir húðarjálkar eins og Steingrímur komnir á eftirlaun, ef hann fær þá einhver.
Hann á þau að minnsta kosti ekki skilið, svo mikið er víst.
Stjórni hann áfram verður ekki til fyrir þeim.
Fundur líklega síðar í vikunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:44 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.