Þriðja heims þroskastig. Frjálst að selja konur og eiturlyf, svindl af öllu tagi, morð og meiðingar, nær engin löggæsla og siðferði.

Glæpamenn úr löndum Schengen hafa hér frítt spil til að selja konur til kynlífs og börnum eiturlyf. 

Þeir fara meira að segja ódæmdir úr landi eftir að hafa nauðgað, barið og ekið drukknir yfir fólk þannig að bani hafi hlotist af.  Þakkað fyrir komuna á Keflavíkurvelli. 

Morðingjar eftirlýstir heima hjá sér og af Interpool, hafa dvalið hérlendis í vellystingum. 

Hér þykir sjálfsagt að sparka í höfuð fólks langa stund og skilja eftir til ólífs.  Börnin eru einnig gengin til leiks.

Alþingismenn sem stela og svíkja landsmenn, eru kosnir á þing að nýju, eftir refsivist.

Heimamenn í hverju plássinu við annað, hlægja sig máttlausa, eftir að hafa kosið þorpsfíflið á þing. 

Pörupiltum er hleypt í sjóði landsmanna og skammta sér að vild.  Senda ránsfeng sinn beint í skattaparadísir. 

Bananalýðveldi, við erum jafnvel eitthvað meira en það.   


mbl.is „Ísland er ekkert bananalýðveldi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband