Lúðvík Geirsson er næsti formaður Samfylkingar.

Þórunn Sveinbjarnardóttir er að vinna sitt stærsta afrek í stjórnmálum.

Hún er að stíga til hliðar fyrir Lúðvík Geirsson, næsta formanni Samfylkingarinnar.

Eina manninum sem getur bjargað íslenskum jafnaðarmönnum frá algeru hruni.

Þórunn og þeir sem enn eru með réttu pólitísku ráði í Samfylkingunni hafa tekið sig saman um innkomu Lúðvíks á þing.

Þau Össur, Jóhanna og Árni Páll eru alveg að koma Samfylkingunni fyrir kattarnef.

Jafnaðarmenn og aðrir landsmenn eru löngu búnir að sjá að þetta fólk segir ekki satt orð.

Og þó að það hafi vafalaust góðan vilja til góðra verka eru vinnubrögðin alveg óásættanleg.

Nú síðast að vilja selja Kínverskum yfirvöldum 0,3 % af Íslandi.

Að þessi starfsmaður Kínverska kommúnistaflokksins hafi orðið miljarðamæringur fyrir ráðgjafastörf.

Því trúir ekki nokkur maður nema Jóhanna Sigurðardóttir og Árni Páll Árnason.

Mörg lönd í Afríku og víðar í þriðja heiminum stefna nú hratt að því að verða kínverskar nýlendur.

Á vesturlöndum er enginn svo vitlaus að vilja hleypa Kínverjum inn á gafl hjá sér nema hluti af íslensku Samfylkingarfólki.

Bandaríkjamenn voru loksins að læra það í Líbýu að nærvera þeirra í framandi löndum hleypir illu blóði í heimamenn.

Því hafa þeir kynnst rækilega í Afganistan og Írak.

Það sama á við hérlendis.

Nú þegar Bandaríkjamenn eru farnir héðan með herstöð sína.

Kemur alls ekki til greina að erlent nýlenduveldi hreiðri hér um sig.

Og hvað þá land með allt aðra menningu.

Ekki einu sinni frelsi og lýðræði.


mbl.is Þórunn hættir á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Landfari

Sennilega nokkuð til í þessu hjá þér með Lúðvík. Ekki slæmt mál það.

Landfari, 2.9.2011 kl. 20:07

2 Smámynd: Viggó Jörgensson

Þakka þér Landfari, það færi betur. 

Viggó Jörgensson, 2.9.2011 kl. 20:16

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Lúðvík hefur allt til brunns að bera að verða góður leiðtogi Samfylkingarinnar. Honum eru stjórnmál hugleikin enda alist við þau frá blautu barnsbeini enda faðir hans mjög virtur þingmaður Alþýðubandalagsins og lengi formaður fjárveitinganefndar.

Lúðvík er varfærinn og ekki líklegur að vilja slá um sig með klisjum og gífuryrðum sem sumum virðist vera tamt.

Varðandi tortryggni gagnvart Kínverjum þá tel eg það vera mjög raunsætt mat. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að þeir hafa ekki talið mannréttindi og hugverkarétt verið mikils virði fram að þessu. Ein hliðin á þessu er: þegar Kárahnjúkavirkjun var á fullu komu almargir kínverskir verkamenn hingað. Nú er kannski á prjónunum mannfrek framkvæmd á Grímsstöðum þar sem þeir vilja senda þúsundir Kínverja hingað til lands enda kínverskt vinnuafl mjög ódýrt þar eystra. Nú má ætla að fjöldi vilji setjast hér að. Einfalt reikningsdæmi: ef fluttir eru hingað til lands næstu áratugi tugþúsundir Kínverja, - hvenær verða þeir meira en 50% af þeim sem búa á Íslandi? Fleiri forsendur vil eg ekki nefna aðra en að ekki þyrfti meðaltalið að vera meira en 15 þús. að meðaltali næstu 20 árin.

GJ

Guðjón Sigþór Jensson, 5.9.2011 kl. 09:56

4 Smámynd: Viggó Jörgensson

Þetta er allt hárrétt athugað hjá þér Guðjón Sigþór.

Viggó Jörgensson, 6.9.2011 kl. 16:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband