Ekkert sumarfrí - haldið þið áfram að vinna!

Það er bara alveg fráleitt að þingmenn taki sér sumarfrí frá löggjafarstörfum langt fram á haust. 

Á neyðartímum.  

Eru þingmenn almennt að fara í heyskap og svo göngur og réttir. 

Þetta sleifarlag er arfur frá því að allir þingmenn voru bændur er áttu lífsbjörg sína undir heyfeng.  

Á meðan þriðjungur þjóðarinnar er á bjargbrúninni og fjöldi mála bíður afgreiðslu. 

Þá ætla þingmenn bara að sóla sig og hafa það huggulegt fram undir réttir.  

Það ætti kannski engan að undra að allt sé hér í kaldakoli.  Þvílíkir amlóðar og skussar. 

Þingmenn eiga bara að fá sama sumar- og jólaleyfi og aðrir.  

Til hvers eru varaþingmenn halda menn? 

Þingið á bara að gjöra svo vel að starfa allt árið eins og nú háttar til.  

Það hljóta allir með sæmilega skynsemi að sjá.   En hennar er kannski von á þinginu

  


mbl.is Þingfundir hefjast að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Mikið innilega er ég sammála þér.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 6.6.2010 kl. 23:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband