Segir fjármálaráðherrann sem er að færa Bónusfjölskyldunni Haga á nýjan leik.

Ekkert hefur breyst.  

Steingrímur J. Sigfússon galar eins og vindhani á hlöðuþaki.  Inn við beinið finnst Steingrími ástandið bara ágætt.  

Í rannsóknarskýrslunni kemur fram að Bónusfjölskyldan, viðskiptafélagar og fyrirtæki þeirra hafi gert áhlaup á íslensku krónuna, og þar með íslensku þjóðina, um páskanna 2008.

Steingrímur og Jóhanna hafa staðið sig frábærlega í að afhenda útrásarvíkingum öll völd og áhrif á nýjan leik.

Þegar bankarnir voru undir stjórn ríkisins gættu þau þess að Bónusfjölskyldan héldi fjölmiðlaveldi sínu.  Þá næst að þau fái Haga aftur, ítök í Arion banka o. s. frv.  

Til hamingju við öll.   Við eigum bestustu stjórnmálamenn og fjármálamenn í heimi....

Gapuxinn Steingrímur hefur bætt eigið Íslandsmet í lýðskrumi.  

Mann sem getur ofið aðra eins værðarvoð og þvætting endalaust þarf að verðlauna sérstaklega. 

Ekki dugir minna en að Steingrímur verði forseti næst.   Þá getur hann vaðið óskiljanlegan elginn endanlaust, um að allt sem hann hefur komið nálægt sé æðislegt og langbest í heimi. 

Því ættum við að vera farin að venjast.

 

 


mbl.is „Rán var það og rán skal það heita“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Skelfilegustu afleiðingar hrunsins eru að koma æ betur í ljós en það eru þær gerðir Steingríms Joð og Jóhönnu að færa helvítis auðglæpahyskinu allt draslið aftur á silfurfati og tryggja að hinn almenni launaþræll sitji uppi með tjónið og greiðslurnar fyrir þjófahyskið. Skjaldborgin hvað...?

corvus corax, 12.4.2010 kl. 16:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband