Afturhald breytir Íslandi í Kúbu. Mun Kolbrún loka virkjunum eða friða þorskinn?

Það eina sem getur komið Íslendingum aftur á fætur eru meiri þjóðartekjur. 

Ekkert er þar í spilunum annað en að virkja allt sem skynsamlegt er að virkja af vatnsföllum og jarðhita.  

Það er þokkalegt ef í nýrri ríkisstjórn verður fólk sem heldur að peningarnir verði til í ríkiskassanum. 

Svo saklaus barnatrú er beinlínis hættuleg þjóðarhag.  Það verður í andstöðu við allar framfarir ef t. d. Kolbrún Halldórsdóttir verður umhverfisráðherra.  Henni væri frekar trúandi til að loka virkjunum og friða þorskinn.  

Hennar helsta þjóðþrifamál á Alþingi hingað til, var að fjalla um lit á klæðnaði nýbura á fæðingardeildinni.  

Það er nákvæmlega svoleiðis fólk sem okkur vantar ekki í stjórnmálin núna.   


mbl.is Gylfi tók ráðherraboði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Kristófer Arnarson

Ekki hafa svona miklar áhyggjur af þessu.  Þú hefur nefnilega alveg kolrangt fyrir þér. 

Jón Kristófer Arnarson, 30.1.2009 kl. 14:39

2 identicon

Hvers konar rugl er þetta!

Már Haraldsson (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 15:31

3 Smámynd: Viggó Jörgensson

Trúarbrögð eru ekki góð í vísindum og stjórnmálum.

Blind trú á frjálshyggju kom vesturlöndum í öll þessi vandræði.  Að lifa í Undralandi er hins vegar ekkert betra.   Raunveruleikinn er ekki ævintýri. Hvað er rugl og rangt hjá mér?

Er önnur tekjuaukning en af virkjunum möguleg? Eru ekki VG á móti virkjunum? 

Var ekki Kolla að fjalla út af bláum og bleikum lit á nýburum á Alþingi?

Hvernig á að leysa málin?  Kannski með skattahækkunum?  Fer þá ekki allt lengra á kaf? 

Má ég biðja um svör. 

Svör eins og ''...hafðu ekki áhyggjur...''   ''...rugl...''  segja mér einmitt að viðkomandi hafi engin úrræði, en það megi bara ekki ræða.     

Viggó Jörgensson, 30.1.2009 kl. 16:19

4 identicon

Kúba, Albanía og Norður Kórea. Steingrímur, Enver Hoxha. Já þetta fellur ótrulega vel saman!

Ingimundur Bergmann (IP-tala skráð) 30.1.2009 kl. 18:25

5 Smámynd: Þór Jóhannesson

Framhald á Sjálfstæðisflokksóstjórn breytir aftur á móti Íslandi í Simbawbe - þá er skárra að hafa hlutina eins og á Kúbu í nokkur ár þar sem allir hafa fullan aðgang að heilbrigðiskerfi og menntakerfi.

Þór Jóhannesson, 30.1.2009 kl. 19:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband