Fjölmiðlafrumvarpið strax - eða Alþingiskosningar strax.

Mesta ógæfa Ólafs Ragnars Grímssonar í forsetaembætti var að stöðva fjölmiðlafrumvarpið hér um árið.  

Það þýddi að fjármagnseigendur fengu vald yfir almenningsálitinu.  Þeir voru orðnir valdameiri en alþingismenn og rétt kjörin ríkisstjórn. 

Íslenska þjóðin hefur aldrei kosið fjármagnseigendur sem slíka, til að stjórna neinu í landi hér.   

Nú ber alþingismönnum að koma í veg fyrir samþjöppun fjölmiðlavalds og samþykkja þegar í stað lagafrumvarp.  

Svo á Samkeppnisstofnun þegar í stað að láta til sín taka vegna nýjustu frétta af fjölmiðlamarkaði.     

 


mbl.is Rosabaugur Jóns Ásgeirs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband