Lagleg samantekt hjá þeim Jóni Bjarnasyni, Atla Gíslasyni og Ögmundi.

Steingrímur er greinilega stoltur af þingsályktun sem þeir tóku saman Atli Gíslason, Jón Bjarnason og Ögmundur.

Lagleg samantekt úr Viðskiptablaðinu, og ritum Seðlabankans, á öllu sem var neikvætt á þeim tíma.

Og fluttu svo í formi þingsályktunar og leyfðu Steingrími að fljóta með sem flutningsmanni við annan þingmann til. 

Þetta eru nákvæmlega mennirnir sem Steingrímur er búinn að fæla í burtu úr VG eða er enn að reyna að fæla burt. 

Nú hentar hins vegar að skreyta sig með verkum þeirra.

Við sem munum eftir stjórnarandstöðuþingmanninum Steingrími J. Sigfússyni.

Getum sagt að hans viðhorf til allra mála var alltaf að allt væri að fara andskotans af því að hann væri ekki ráðherra.

Einhver munur eða núna þegar við við erum næstum komin þangað í hans fylgd.

"...Morgundagurinn kemur aldrei..." var nokkurn veginn þemað í öllum ræðum hins bitra og súra Steingríms.

Menn sem sáu djöfulinn í öllum hornum, og voru málkunnugir ömmu hans, geta auðvitað sagst hafa verið svartsýnir.

Og daglega spáð heimsendi, því það gerði Steingrímur svikalaust.

Man reyndar ekki eftir að hann hefði sérstakar áhyggjur af bönkunum eða bæri hag þeirra svo mjög fyrir brjósti.

En í dag taldi Steingrímur það henta og vonar enn að finna megi einhverja sem trúi orði af því sem hann segir.

Og þá auðvitað í sínu kjördæmi fyrir norðan, svo sem búandkarla með biluð útvörp eða heyrnartæki.

Steingrími er sama hvort það er, bara að þær skynlausu skepnur tóri fram yfir kosningar.

Í bankafræðum er það það þekkt að almennt þolir enginn viðskiptabanki á sig allsherjar áhlaup innlánseigenda og lánveitenda.

Steingrímur J. Sigfússon hreykti sér af því í Landsdómi í dag.

Að hann hefði viljað kalla saman Alþingi í ágúst árið 2008.

Svo að hann gæti þar básúnað um vanda bankanna.

Það hefði orsakað áhlaup á bankanna jafnvel sama dag og að slíkt hefði verið tilkynnt.

Þess eru lítil takmörk hvað hægt er að vera mikið fífl. ‘‘‘

Stjórnarandstöðuþingmaðurinn Steingrímur J. Sigfússon hafði ekki aðrar eins áhyggjur af neinu.

Eins og þeim sem áttu peninga og bönkunum sem geymdu peninganna þeirra.

Var bara með böggum hildar og svaf ekki á þessum tíma.

Enda var það hans fyrsta verk sem fjármálaráðherra að gæta að hagsmunum Baugsfjölskyldunnar.

Sem tapaði öllu út úr Glitni og tapaði svo bankanum sjálfum í hruninu.

Því hljóp hinn nýbakaði fjármálaráðherra Steingrímur beint niður í Landsbanka.

Til að gæta þess að Baugsfjölskyldan héldi fjölmiðlaveldi sínu og hefur gætt þess síðan.

Því næst fór hinn grátbólgni Steingrímur í að afhenda erlendum fjárglæframönnum íslensku bankanna á gjafprís.

Þessa sömu og komu bönkunum á hausinn með skortstöðum og öllum þeim nýtísku aðferðum.

Sem Evrópusambandið flutti inn frá Ameríku.

Svo að peningaeigendur í skattaparadísum gætu haldið áfram að fjárpynta almenning.

Og á því er bara hinn besti gangur og Steingrímur aftur farinn að ná svefni. Guði sé lof.

Það voru annars vonbrigði að Steingrímur skyldi ekki vera látinn sverja drengskapareið að framburði sínum.

Eða að mannfræðingur væri ekki  látinn mæla lengdina á nefi Steingríms.

Áður en hann byrjar að ljúga og svo aftur þegar hann var búinn að því.

Og að Steingrímur væri látinn sýna öllum tunguna sem er svört eins og samviskan.

Samviskuna gat Landsdómur ekki skoðað því hún er læst niðri, í geymslunni hjá Jóhönnu, undir konfektinu hennar Jónínu.

Og rétt í svipinn man Jóhanna ekki eftir að eiga neina geymslu og því síður lyklinum.

Það var annars gaman fyrir Steingrím að æfa sig að ljúga fyrir Landsdómi og dómstólum.

Eftir næstu Alþingiskosningar verður hann sjálfur kominn þar á sakamannabekkinn.

Og öfugt við núverandi réttarhald mun þar ekki þurfa að leita að sakarefnunum.

Þeir Steingrímur og Svavar eru búnir að gulltryggja sér 16 ára vist á dvalarheimilinu.

Þessu sem Ögmundur ætlar að byggja undir flokkinn á Hólmsheiði.

Þau Össur og Jóhanna voru hins vegar vinsamlegast beðin um að koma ekki aftur í Landsdóm.

Þau lýstu því þar rækilega, í vikunni, að þau væru fábjánar í efnahagsmálum svo að um það efast enginn lengur.

Þurfa ekki einu sinni að skila inn vottorði.

Steingrímur sá hins vegar ástæðu til að nefna sérstaklega að í dag væri hann sko að segja satt. 


mbl.is „Ísland var best í heimi"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sorglegt, en satt. Flott pistill. Þú hittir naglann á höfuðið!

anna (IP-tala skráð) 13.3.2012 kl. 21:54

2 Smámynd: Viggó Jörgensson

Já Anna mjög sorglegt.

Ég ætla að leyfa mér að setja hér einnig inn,

hluta af því sem ég svaraði Óskari Guðmundssyni hér fyrr í kvöld.

...Steingrímur er hins vegar sá allra ómerkilegasti loddari

sem tekið hefur þátt í íslenskum stjórnmálum.

Hann stendur nákvæmlega alls ekki fyrir neitt nema eigin

sjúklegu athyglissýki og allt annað eru svik og vesöld.

Líklega einhver mesti aumingi í Íslandssögunni.

Og hér er ég að sjálfsögðu ekkert að fjalla um einkapersónu Steingríms sem ég þekki ekkert.

Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að Steingrímur sé hinn mætasti heimilisfaðir.

En stjórnmálamaðurinn Steingrímur hefur svikið stefumál sín miklu rækilegar en nokkur annar.

Fyrir ráðherrastól ákvað hann að sleppa því að gera allt sem ríkið gat fyrir fólkið í landinu.

Þess í stað fórnaði hann þúsundum heimila þeirra sem minna máttu sín,

fórnaði 6. 000. ungum vinnandi skattgreiðendum burtu úr landinu,

fórnaði heill og hamingju þúsunda þess fólks, hvers hann sagðist vera sérstakur verndari.

Og allt var þetta gegn betri vitund, öfugt við þau flón í Samfylkingunni sem þröngvuðu honum til þess.

Sem eru ýmist treggáfað ofstopafólk, guðsvolaðir drykkjusjúklingar eða ágætt fólk en auðtrúa.

Fólk sem ekki hefur áttað sig á að Evrópu er stjórnað af fjárglæpamönnum, afkomendum

arðræningja nýlendustefnunnar en ekki af hamingjusamri stórfjölskyldu sósíaldemókrata.

Þó að foringjar þeirra séu auðvitað stórkostlega hamingjusamir þar sem þeir hittast

dauðadrukknir á samkomum sínum í fylgd vændiskvenna sem eru löngu orðnar sérfræðingar í Evrópufræðum .

Vinstri maðurinn franski Dominique Strauss-Kahn er holdgerfingur þeirrar dýrðar.

Steingrímur ákvað, fyrir ráðherrastólinn, að sleppa öllu því sem ríkið gat þó gert fyrir fólkið í landinu.

Til þess að þóknast kröfum Evrópusambandsins í ríkisfjármálum.

Hann ákvað sem sagt að hlaupa erinda þeirra alþjóðlegu fjárglæframafíu sem stjórnar Evrópusambandinu og Bandaríkjunum.

Fjárglæframafíu sem lítur á þjóðfélög vesturlanda, og heimsins, sem leiksal fyrir þá sjálfa.

Til að stunda þar sjúklegt fjármálabrask með hagsmuni almennings í þeim löndum.

Það sjúklega fjármálabrask sem fundið var upp í Bandaríkjunum og Evrópusambandið flutti inn með velþóknun.

Enda er því sambandi og þeim þjóðum stjórnað af þessari sömu fjárglæframafíu.

Þessu fjármálabraski sem allt lítur að því að stela verðmætum þessara þjóða.

Auðvitað án þess að greiða skatt af þeim, og fela niður í skattlausum, og löglausum,skattaparadísum.

Og þetta sjúklega fjármálabrask gat sem sagt, verið stundað með hagsmuni íslensku þjóðarinnar.

Frá og með þeirri stundu sem íslenskir kratar plöntuðu okkur inn á Evrópska efnahagssvæðið.

Að sjálfsögðu vissu þeir ekkert hvað þeir voru að gera,

frekar en nú þegar þeir vilja svíkja okkar algerlega, og endanlega, í hendur á sömu fjárglæframafíu,

með því að láta okkur ganga inn í Evrópusambandið.

Og Steingrímur, sem vissi þetta allt, ákvað að taka frekar ráðherrastólinn

en að vera sá stjórnmálamaður sem hann sagðist vera þegar hann var í stjórnarandstöðu.

Og hvaða þjóð skyldi nú vera best kunnugt um skúrkabrögðin í fjármálum.

Ég ætla mér að halda því fram að það séu þau í Sviss.

Og kannski hefur almenningur í Sviss það best í veröldinni.

Enda er Sviss og þjóðarauður Sviss fyrir fólkið þar en ekki aðra að leika sér með og hlaupa með burt.

Sviss er hjarta Evrópu og er í EFTA.

En þeim kemur ekki til hugar að ganga í ESB eða inn á EES.

Þeir þekkja betur til en svo

Viggó Jörgensson, 13.3.2012 kl. 22:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband