Þekkir hún ekki Össur?

Óttalegt flón er þessi kona.

Og þau öll þarna í ESB.

Að hafa þessar óþarfa áhyggjur af Evruni.

Hann Össur er margbúinn að sverja ofan í okkur Íslendinga.

Að allt sé í stakasta lagi með evruna.

Jóhanna fór meira að segja sjálf til Þýskalands, að útskýra þetta allt fyrir frú Merkel.  

En það sem Jóhönnu okkar finnst bæði létt og augljóst.

Er flókið fyrir einfaldri sál eins og frú Merkel sem lærði reikning á talnagrind hjá austurþýskum kommúnistum.     

Frú Jóhanna lærði jú vélritun og á reiknivél í sjálfum Verslunarskólanum sem þá var með Z. 

Frú Merkel var bara með reiknistokk í doktorsprófinu í kjarneðlisfræði.   

 

 


mbl.is Evrusvæðið má engan tíma missa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 Hvað sem þessi Össur segir um Evru,og Jóhanna mangar við Merkel,ætlum við að sýna henni í eitt skipti fyrir öll að langflest okkar viljum ekki í Esb. Meir hluti þjóðarinnar er andvígur ónýta gjaldmiðli þeirra,hafnar aðild að E-sambandinu. Það er eins og þjóðin undirbúi sig að sýna það í verki,það er eina sem dugir.

Helga Kristjánsdóttir, 25.9.2011 kl. 02:23

2 Smámynd: Viggó Jörgensson

Þakka þér kærlega Helga.

Ég held að ekkert komi vitinu fyrir þetta fólk. 

Þau hafa engan skilning á því að hvorki við eða þau höfum hið minnsta leyfi til að afsala landinu og auðlindum þess.

Til annarra þjóða. 

Það er bara ekki réttur sem við núlifendur getum tekið okkur. 

Það heitir valdþurrð.    

Viggó Jörgensson, 25.9.2011 kl. 15:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband