Alveg geggjaður - Dýr aðgöngumiði að ESB.

Þegar svo margt í þjóðfélaginu er á heljarþröminni sýna þessi ummæli hversu galinn Steingrímur er orðinn eftir 28 ár á ríkisjötunni.

Fyrir bankahrun hefðum við kannski verið á sama máli.

En þegar við bætist að meginhluti upphæðarinnar er eingöngu aðgöngugjald að Evrópubandalaginu þá tekur steininn úr.

Þjóðin er kannski ekki alveg tilbúin að greiða fyrir þetta einkaáhugamál þeirra Jóhönnu og Össurar.

Enginn vafi er á að við hefðum náð miklu betri samningum ef Bretar og Hollendingar vissu ekki af ESB þráhyggju ríkisstjórnarinnar.


mbl.is Icesave-málið ekki það stórt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Why not just stick to being a fishing nation...It works for the faeroese  who are bigger than you (remeber they loand you money)and Graendlandingar? It is obvious you are useless trying to be a "stor Thjod" ?? (lets face it......You are smaller than Rotherham) ! Why should we not be as nasty to you as you are  to other nations??? Pay back time maybe ?????

Fair Play (IP-tala skráð) 24.2.2011 kl. 01:12

2 Smámynd: Hannes Baldursson

Hvaða fair play dickhead er þetta eiginlega sem er að trolla hérna á öllum bloggunum?

Hannes Baldursson, 24.2.2011 kl. 04:43

3 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

SJS í þinginu 2003

Treystum við ekki þjóðinni? Ekki getur það verið vandinn að nokkrum manni í þessum sal, þingræðissinna, detti í hug að þjóðin sé ekki fullfær um að meta þetta mál sjálf og kjósa um það samhliða því að hún kýs sér þingmenn Stundum heyrist að vísu einstaka hjáróma rödd um að sum mál séu svo flókin að þau henti ekki í þjóðaratkvæði. Það er einhver allra ömurlegasti málflutningur sem ég heyri.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 24.2.2011 kl. 09:27

4 Smámynd: Viggó Jörgensson

Þakka þér, þó seint sé, Ólafur Ingi. 

Ætla að fá að nota þetta frá þér við tækifæri. 

Viggó Jörgensson, 27.2.2011 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband