Lekinn úr forsætisráðuneytinu augljóslega viljandi til að spilla fyrir norskri lausn án ESB og AGS.

Spunameistarar Jóhönnu hafa augljóslega lekið fundargerð um álit manna í Seðlabankanum um mögulegar afleiðingar þess að afþakka lán frá AGS til að kaupa okkur inn í ESB. Augljóslega gert til að spilla fyrir norskri leið og öðru en ESB inngöngu.

Hafi einhverjir í Ameríku trúað blint á frjálshyggjuna og Steingrímur á Stalín í æsku - þá eru Jóhanna Sigurðardóttir og ESB sinnar engu betri.

Ofsatrú á ESB er ekkert betri en önnur ofsatrú og kreddur.   Samfylkingin ætlar að teyma okkur inn í ESB  hvað sem það kostar.  Það er vandamálið, HVAÐ SEM ÞAÐ KOSTAR.

Það getur vel verið að það henti okkur einhvern tíma að ganga í ESB en það yrði þá að vera algerlega  skv. hagsmunum íslensku þjóðarinnar, svo sem engar veiðar ESB í landhelgi okkar né yfirráð yfir landi eða orkuauðlindum.   

Innganga í ESB er ekki raunhæf nú um stundir.  Ekki er sjáanlegt að ESB muni samþykkja lífsnauðsynlegar forsendur okkur í fyrirsjáanlegri framtíð. 


mbl.is Mun ekki biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Jóhanna er að fara yfirum

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 10.10.2009 kl. 18:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband