Flott hjá Óla og Dóru.

Og hárrétt hjá forsetanum að vekja athygli á " ...mikilvægi heimskautanna fyrir loftslag jarðar og framtíðarheill mannkyns.“

Við núlifendur verðum áreiðanlega kölluð heimska kynslóðin í framtíðinni.

Erum að drepa okkur, og afkomendur okkar, með skefjalausri mengun. 

En vissum betur.

Vinir forsetans í Kína eru ókrýndir heimsmeistarar í mengun og sóðaskap sem er ekki einkamál Kínverja.  

Forsetinn mætti vel greina okkur frá því, hvort hann hafi barið rækilega á Kínverjum út af mengunarmálum. 

Eða hvort hann gat það aldrei, í pestinni þar, fyrir ofnæmi, höfuðverk og hósta.   

 


mbl.is „Við Dorrit óskum þér til hamingju“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband